8.9 C
Selfoss

Hilary ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi

Vinsælast

Hilary Jane Tricker hefur verið ráðin markaðs- og fjölmenningarfulltrúi Mýrdalshrepps. Hún mun hefja störf 1. desember næstkomandi.

Með ráðningunni er lögð áhersla á að efla markaðs- og kynningarmál sveitarfélagsins og styðja við öflugt fjölmenningarsamfélag.

„Í Mýrdalshreppi býr fólk af fjölbreyttum uppruna og felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl íbúa, greiða aðgengi að upplýsingum og hvetja til virkrar þátttöku í samfélaginu,“ kemur fram í tilkynningu Mýrdalshrepps.

Nýjar fréttir