10.6 C
Selfoss

Listasafn Árnesinga býður upp á klippimyndasmiðju

Vinsælast

Sunnudaginn næstkomandi þann 7. júní mun Listasafn Árnesinga bjóða upp á klippimyndasmiðjuna – Eðli tilverunnar með listakonunni Amina Zoubir. Amina Zoubir er alsírsk-frönsk samtímalistakona, kvikmyndagerðarkona og gjörningalistamaður. Hún býr og starfar á milli Algeirsborgar og Parísar og vinnur með fjölbreytta miðla, meðal annars ljósmyndun, myndbandslist, gjörninga, skúlptúra og innsetningar. Smiðjan er fyrir bæði fullorðna og börn sem eru 6 ára og eldri og hefst kl. 14:00-16:00.
Ókeypis þátttaka en takmarkaður fjöldi og skráning nauðsynleg.
Hægt er að sjá komandi viðburði á vefsíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og facebook síðu safnsins. Opið er alla daga

Nýjar fréttir