8.9 C
Selfoss

Við óskum eftir ykkar stuðning til að vinna þetta saman

Vinsælast

Samstarf er rauði þráðurinn í okkar stefnumálum. Við viljum efla samstarf við íbúa, starfsfólk sveitarfélagsins, við atvinnulíf, á milli kjörinna fulltrúa, við nágrannasveitarfélögin og ríkisvaldið. Það er einlæg trú okkar að með þeim hætti náum við betri árangri í því sem skiptir mestu máli, þjónustu við ykkur, íbúa í Ölfusi. Rekstur sveitarfélaga þarf að vera góður, það er ekki spurning. En við erum ekki að reka fyrirtæki, við erum að rækta samfélag og það á alltaf að vera útgangspunkturinn á sama tíma og unnið er hörðum höndum að því að auka fjölbreytni atvinnulífs á svæðinu.

Samfylkingin og félagar í Ölfusi er einmitt samstarfsframboð. Framboðið er samstarf á milli félaga í Samfylkingunni og annarra sem tilheyra ýmist öðrum flokkum eða engum. Við höfum oft verið spurð að því af hverju við ákváðum að bjóða fram S-lista og svarið við því er einfalt. Við teljum okkur geta unnið betur fyrir ykkur, íbúa í Ölfusi, með beina tengingu við þann öfluga hóp sem starfar í flokknum. Við erum með tvo þingmenn í kjördæminu, flokkurinn er í ríkisstjórn og öll erum við samvinnu- og félagshyggjufólk. Við undirstrikum að við erum í framboði á okkar forsendum fyrir samfélagið okkar í Ölfusi.

Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að hitta íbúa nú í aðdraganda kosninga og eiga samtalið við ykkur milliliðalaust. Við lögðum okkur fram við að koma til ykkar, bönkuðum upp á í hverri einustu íbúð í Þorlákshöfn og dreifbýli og fengum að heyra hvað brennur á íbúum. Það var gott að finna samhljóminn með stefnumálum okkar.

Íbúar kalla eftir betri þjónustu við eldra fólk, meira félagsstarfi og auknu öryggi. Skipulagsmál voru fólki ofarlega í huga og áhyggjur af þróun þeirra. Íbúar í dreifbýli vilja fá áheyrn og viðurkenningu á að þeir eru líka hluti af þessu sveitarfélagi. Það er ákall um skýra framtíðarsýn um aukna þjónustu í dreifbýlinu eins og byggingu leikskóla og uppbyggingu mikilvægra innviða. Áhuginn á heimastjórn er mikill og við trúum því að heimastjórn geti brúað bilið milli Þorlákshafnar og dreifbýlisins og þannig styrkt samfélagið allt.

Starfsfólk í leikskóla var ánægt að sjá stefnu okkar um að styrkja þau aftur til náms og auka þannig við hlutfall fagmenntaðra í leikskólum sveitarfélagsins. Við heyrum frá unga fólkinu að það hlakkar til að fá alvöru rödd í stjórnsýslu sveitarfélagsins með virku ungmennaráði, meira framboði af frístundum og fjölbreyttum sumarstörfum.

Íbúar kalla margir eftir aukinni stoðþjónustu í skólunum og líst vel á þær leiðir sem við kynntum og snúa að því að kortleggja velferðarumhverfi barna okkar. Finna út úr því hvað gengur vel, hvað þarf að bæta og setja upp aðgerðaáætlun í anda verkefnisins Börnin okkar í Mosfellsbæ.

Síðustu vikur og mánuðir hafa verið virkilega gefandi. Allir 14 frambjóðendur á lista hafa tekið fullan þátt og lagt mikið á sig til þess að læra um sveitarfélagið. Þau hafa kafað ofan í árangursrík verkefni í öðrum sveitarfélögum, skrifað greinar, haldið ótal marga fundi um hin ýmsu málefni, vel heppnaða íbúafundi og fjölda ólíkra viðburða til þess að gefa ykkur sem flestum tækifæri á að kynnast okkur og þeim málum sem við leggjum áherslu á. Við erum tilbúin að hefjast handa og koma þessum góðu málum í framkvæmd.

Bæjarstjóraefni okkar, Bryndís Gunnlaugsdóttir, er efni í heila grein en á þessum tímapunkti vonumst við til þess að okkur hafi tekist að kynna hana nógu vel fyrir ykkur svo þið vitið hvað hún hefur til brunns að bera. Í mjög stuttu máli, þá hefur Bryndís djúpa þekkingu og víðtæka reynslu af málefnum sveitarfélaga. Hún er lögfræðingur og hefur síðustu 15 ár sérhæft sig í opinberri stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélaga. Hún er körfuboltakempa sem sameinar djúpa reynslu, fagleg gildi og skýra sýn á farsæla stjórnun sveitarfélagsins. Hún ætlar að flytja í sveitarfélagið ef við náum tilsettum árangri og vera virkur þátttakandi í samfélaginu með kærasta sínum og tveggja ára dóttur. Bryndís veit sem er, að við þurfum hvert á öðru að halda og með því að snúa bökum saman búum við til sterkt samfélag.

Kæri íbúi í Ölfusi.

Það er til mikils að vinna að breyta áherslum í stjórnun á þessu sveitarfélagi. Eflum samstarfið, bætum þjónustuna og sækjum áfram árangur í raunverulegu samtali.

Vinnum þetta saman!

Fyrir hönd Samfylkingar og félaga í Ölfusi:
Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti
Berglind Friðriksdóttir, 2. sæti
Pálmi Þór Ásbergsson, 3. sæti
Bryndís Sigurðardóttir, 4. sæti

Nýjar fréttir