10 C
Selfoss

Til forystu fyrir Árborg

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg stendur á krossgötum. Undanfarin ár hafa einkennst af miklum vexti og uppbyggingu, en á sama tíma hafa íbúar og fyrirtæki þurft að taka á sig óhóflegar skattahækkanir ásamt miklum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins og hærri fasteignagjöldum. Við teljum að hægt sé að gera betur með skýrari forgangsröðun, ábyrgari fjármálastjórn og um leið standa með hagsmunum íbúanna okkar.

Samfylkingin og óháðir í Árborg vilja leiða breytingar sem skila raunverulegum ávinningi fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Við setjum ávallt almannahagsmuni og jöfn tækifæri í forgang og leggjum fram skýra stefnu þar um með hagsmuni heimila og fyrirtækja í fyrirrúmi.

Í fyrsta lagi viljum við lækka fasteignagjöld og aðrar álögur í áföngum á kjörtímabilinu. Fjárhagsstaða sveitarfélagsins þarf að vera sjálfbær. Hún má ekki byggjast á óhóflegri skattheimtu á heimili og fyrirtæki í sveitarfélaginu. Með markvissari rekstri, skynsamlegri forgangsröðun fjármuna, bættri áætlanagerð og betri yfirsýn yfir fjárfestingar er svigrúm til að létta verulega undir með íbúum og fyrirtækjum.

Í öðru lagi ætlum við að bæta stöðu barnafjölskyldna með því að setja þak á leikskólagjöld, tryggja 100% systkinaafslátt og fjölga leikskólarýmum. Það er bæði réttlætismál og skynsamleg fjárfesting til framtíðar að tryggja að öll börn hafi aðgang að leikskólaplássi eftir að fæðingarorlofi lýkur svo báðir foreldrar hafi raunhæfa möguleika til þátttöku á vinnumarkaði.

Í þriðja lagi viljum við nýta velferðartækni markvisst til að bæta þjónustu við eldra fólk. Með einföldum lausnum er hægt að auka öryggi í heimahúsum, styðja við sjálfstætt líf og létta álag á þjónustukerfið. Með frekari samþættingu á þjónustu milli HSu og Árborgar getum við bæði aukið og einfaldað þjónustu við eldra fólk og tryggt því aukin lífsgæði sem sannarlega undirstrika að það sé gott að eldast í Árborg.

Við trúum því að Sveitarfélagið Árborg geti gert betur og að það sé hægt að ná betri árangri á sama tíma og álögur eru lækkaðar á íbúa og fyrirtæki. Það krefst nýrrar sýnar, markvissra ákvarðana til framtíðar og forystu sem setur íbúana í fyrsta sæti.

Nýtum kosningaréttinn!

Nú er komið að ykkur, kæru íbúar í Árborg. Kosningarétturinn er einn af hornsteinum lýðræðisins, þar sem íbúar sem hafa kosningarétt fá tækifæri til að hafa áhrif á framtíð samfélagsins. Með þátttöku mótum við stefnu næstu ára. Með virkri þátttöku tryggjum við að meirihluti bæjarstjórnar endurspegli vilja íbúanna og starfi með skýru umboði.

Nýtum kosningaréttinn og setjum X við S. Með þínum stuðningi erum við tilbúin að leiða nýjan meirihluta í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar eftir kosningarnar nk. laugardag 16. maí.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson
Oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Árborg

Nýjar fréttir