2.8 C
Selfoss

Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa

Vinsælast

Margir þekkja mig úr heimi íþróttanna en færri vita að ég er með mastersgráðu í alþjóðasamskiptum þar sem opinber stjórnsýsla er einn af grunnsteinunum. Ég brenn fyrir því að efla stjórnsýslu Hveragerðis. Öflug, gagnsæ og skilvirk stjórnsýsla sem tekur mið af þörfum allra íbúa er lykilatriði í gæðasamfélagi. Það er mikilvægt að halda þeirri vegferð áfram sem hófst fyrir fjórum árum.

Á síðustu árum hefur orðið mikilvæg breyting sem einkennist af aukinni fagmennsku og skýrari verkaskiptingu. Ein af lykilbreytingunum er sú að ákvarðanataka dreifist nú betur á fagleg svið þar sem sviðsstjórar bera ábyrgð. Nýtt skipurit bæjarins endurspeglar þessa sérhæfingu með fjórum öflugum stoðum:

  • Mennta-, menningar- og lýðheilsusvið: Heldur utan um okkar mikilvægasta auð: börnin og vellíðan íbúa.
  • Velferðarsvið: Tryggir félagslegt öryggi og stuðning við þá sem á þurfa að halda.
  • Tækni- og umhverfissvið: Stýrir vextinum, innviðum og því hvernig við byggjum upp bæinn okkar.
  • Stjórnsýslusvið: Heldur utan um fjármál, stafræna þróun, þjónustuver og markaðsmál.

Þessi nálgun er grundvöllur nútímalegrar stjórnsýslu. Hún byggir á því að ákvarðanir séu teknar nær verkefnunum sjálfum af fólki sem hefur þekkingu og reynslu. Þetta fyrirkomulag hefur þegar sýnt gildi sitt; með því að færa fræðslu- og velferðarþjónustu aftur „heim“ í bæinn hefur tekist að bæta þjónustu og bregðast hraðar við þörfum samfélagsins.

Stjórnsýslan á að vera málpípa íbúanna. Á kjörtímabilinu hafa raddir bæjarbúa fengið aukið vægi, meðal annars með reglulegum upplýsingafundum og virkari notendaráðum, svo sem nýstofnuðu ungmennaráði, öldungaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks. Virkt íbúalýðræði styrkir ákvarðanatöku og gerir hana betri.

Ég hef verið spurður hvort ég hyggist sjálfur taka að mér hlutverk bæjarstjóra. Svarið er einfalt: Ég treysti engum betur en Pétri G. Markan til að leiða þá vinnu áfram. Hann hefur reynsluna og þekkinguna til að byggja upp það faglega umhverfi sem við sjáum í dag. Mitt hlutverk sem oddviti er að tryggja pólitíska forystu og skýra framtíðarsýn, á meðan bæjarstjóri leiðir öflugan hóp fagfólks.

Grunnþjónustan á alltaf að vera í forgrunni. Við þurfum að halda áfram að byggja upp faglega og samhæfða stjórnsýslu sem þjónar íbúum á réttan hátt. Það er verkefnið fram undan.

Lárus Jónsson
Oddviti Okkar Hveragerðis

Nýjar fréttir