11.7 C
Selfoss

Uppselt á allar sýningar Mamma Mia í Hveragerði

Vinsælast

Undanfarnar vikur hefur skólastarfið hjá 10. bekk Grunnskólans í Hveragerði litast af sköpunargleði, æfingum, sýningum og sviðsljósi. Nemendur ákváðu í samráði við umsjónarkennara að setja upp söngleikinn Mamma Mía og hefur hann svo sannarlega slegið í gegn og uppselt á allar sýningar. Umsjónarkennararnir Sigrún Árnadóttir og Jónas Gunnþór Jónsson sáu um leikstjórn og sviðsmynd með aðstoð nemenda, ásamt því að fá aðstoð frá foreldrum.

„Þótt afraksturinn sé glæsileg leiksýning, þá eru stærstu sigrarnir oft þeir sem áhorfendur sjá ekki – þeir sem eiga sér stað í hjörtum og huga nemendanna sjálfra. Að sigrast á sjálfum sér. Fyrir mörg ungmenni er það ein stærsta áskorun lífsins að standa fyrir framan hóp af fólki. Feimnin getur verið eins og þungur hjúpur, en í leiklistinni fær hún að víkja. Með því að klæðast búningi og breytast í aðra persónu finna margir nemendur nýja hlið á sjálfum sér,“ segir Sigrún, umsjónarkennari nemendanna. „Þegar nemandi tekst á við óttann við að gleyma línu eða gera mistök, og stígur svo fram og klárar verkið, á sér stað valdefling sem nýtist þeim út í lífið. Þetta er lærdómur í seiglu og sjálfstrausti sem engin bók getur kennt.“
 

Nýjar fréttir