Það hefur svo sannarlega verið nóg að gera í Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í vetur. Við skólann hafa 64 nemendur verið við nám í vetur í 1.-9. bekk en næsti vetur verður sá fyrsti í langan tíma þar sem að skólinn verður með nemendur í öllum árgöngum.
Verknámshús var opnað í vetur en fram að því hafði aðstaða til smíðakennslu og heimilisfræði verið inni í skólabyggingunni. En þegar nemendum var farið að fjölga hressilega þá voru góð ráð dýr og því hófst sveitarfélagið handa síðasta sumar við að byggja glænýtt verknámshús. Sú vinna gekk vonum framar og verknámshúsið var komið í fulla notkun eftir áramótin. Ekki veitti af því að stofan sem áður hýsti smíðastofu fékk þá nýtt hlutverk eftir góðar breytingar og varð að kennslustofu fyrir miðstig.

Það er óhætt að segja að þessi breyting hafi verið mjög jákvæð. Skólinn er nú með nýtt kennslueldhús fyrir heimilisfræði og góða aðstöðu til smíðakennslu og textíl- og myndmenntakennslu. Bæði nemendur og kennarar hafa, síðustu mánuði, verið að koma sér fyrir og finna taktinn í þessu nýja og frábæra umhverfi. Lionsklúbburinn Dynkur gaf skólanum saumavél og vínilskera fyrir verknámshúsið að andvirði 250.000 kr. Þessi stuðningur kemur sér sannarlega vel.
Útinámið hefur alltaf skipað stóran sess í Þjórsárskóla og enginn breyting er á því þennan veturinn. Við hófum skólaárið á tjaldútilegu í haust þar sem að allur skólinn fór í skógarferð í Þjórsárdalinn og gistu nemendur í 2.-9. bekk í tjöldum eina nótt. Nemendur og kennarar stóðu sig frábærlega. Í mars fór miðstigið í skálaferð þar sem leikir og samvera voru aðalviðfangsefnið og aftur er stefnt á ferð í vor þegar unglingastigið fer í dags gönguferð í Þjórsárdalnum með endastöð í fjallaskálanum Kletti þar sem þau munu gista. Skálinn Klettur er á afrétti Flóa og Skeiða. Auk þess hafa nemendur verið í markvissu útinámi í allan vetur þar sem unnið hefur verið að fjölbreyttum verkefnum.
Allt þetta hefur stutt vel við það fjölbreytta nám sem fer fram á öllum stigum. Eftir magnaða árshátíð í haust hafa nemendur verið á fullu í ýmiskonar þemaverkefnum. Lestri er gert hátt undir höfði á öllum stigum og það eru glæsilegar framfarir hvert sem litið er.
Unglingastigið gerði sér svo lítið fyrir og skellti sér á sýninguna Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu þar sem þau voru til fyrirmyndar og skemmtu sér konunglega. Næsta haust hefst svo á námsferð 9. bekkjar til Berlínar sem hefur verið í undirbúningi í allan vetur og að sjálfsögðu á útilegu þar sem að allur skólinn fer aftur af stað.
Þá má ekki gleyma glæsilegu fullbúnu íþróttahúsi sem tekið verður í notkun næsta haust og mun gjörbylta íþróttakennslu við skólann.
Það er bjart yfir í Þjórsárskóla.
Guðmundur Finnbogason,
Skólastjóri Þjórsárskóla


