Söngkonan Marína Ósk og viðburðafyrirtækið MX PROJECTS kynna með mikilli hjartagleði “Söngvaskáld í stofunni”, stofutónleikaröð þar sem Marína Ósk býður íslenskum söngvaskáldum heim í stofu, hvar þau flytja tónlist hvors annars, spjalla við áhorfendur og segja sögur.
Á þessum fyrstu tónleikum sem haldnir vberða næskomandi sunnudag, mun enginn annar en Hreimur Örn Heimisson setjast í stofuhornið með Marínu Ósk. Hreim þarf vart að kynna, enda einn ástsælasti söngvari og lagahöfundur þjóðarinnar til margra ára. Hann hefur gert garðinn frægan með hljómsveitum á borð við Land og syni og Made in Sveitin, ásamt því að minna okkur öll á hvað Lífið er yndislegt.
Búast má við huggulegri og heimilislegri tónleikaupplifun, kitluðum hláturvöðvum, tónlistarlegri næringu og léttum veitingum í boði húseigenda. Húsið opnar kl. 19:15 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Sætaframboðið er eðlilega takmarkað og fyrstur kemur, fyrstur fær sér sæti. Áhorfendur velja sjálfir sitt eigið miðaverð og einnig verður hægt að fjárfesta í plötum og varningi listafólksins.
Viðburðurinn er haldinn með dyggum stuðningi Uppbyggingarsjóðs Suðurlands og Tónlistarsjóðs. Markmið verkefnisins er að stuðla að samheldni samfélagsins í Árborg sem og fjölbreyttu tónleikahaldi utan höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburðinum: „Söngvaskáld í stofunni: Marína Ósk & Hreimur.“
Næstu stofutónleikar verða haldnir 27. september þar sem Ragnheiður Gröndal verður gestur.

