6.8 C
Selfoss

Grilluð folaldalund með grænni sósu

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Gunnar Þorgeirsson.

Fékk áskorun frá vinkonu minni í síðasta blaði og tók henni með ánægju. En eins og hún nefnir er ég ekki mikið fyrir að fara eftir uppskriftum heldur að spila af fingrum fram við matseldina. Það er kannski erfitt að setja það á blað dass af þessu og dass af hinu. Þannig að ég ætla að reyna að setja uppskrift af forrétti og aðalrétti á blað. En eins og fram kom hjá Evu þá framleiðum við kryddjurtir í Gróðrarstöðinni Ártanga þannig að hráefnið litast af því.

Í forrétt býð ég upp á Bruchettu

4 stórir tómatar
5 hvítlauksrif
2 matskeiðar olífuolía
10 basilíkulauf
2 matskeiðar balsamedik
Salt og pipar
2 stykki Ciabatta-brauð

Saxið tómatana smátt og setjið í skál, ásamt smátt saxaðri basilíku og hrærið saman. Setjið edikið og ólífuolíuna saman við og salt og pipar eftir smekk. Pressið 4 hvítlauksrifin og blandið saman við. Setjið í ísskáp í ca. klukkustund.

Takið ciabatta-brauðið og skerið í ca. 2 cm sneiðar. Takið síðasta hvítlauksrifið og strjúkið yfir brauðið og setjið ólífuolíu á með og grillið brauðið á útigrillinu svo það verði stökkt. Berið svo brauð og tómatmaukið fram og þá getur hver fyrir sig sett á brauðið það sem honum hentar.

Svo í aðalrétt er grilluð folaldalund með grænni sósu.

Græn sósa:

2 skalottulaukar, fínt saxaðir
4 greinar ferskt timjan
2 greinar rósmarín
½ búnt steinselja
4 greinar kerfill
4 greinar ferskt estragon
¼ dl safi úr ferskri sítrónu
1 tsk. sýrður rjómi
1 tsk. sterkt Dijon-sinnep
5 msk. smjör
10 ml. vatn

Salt og pipar eftir smekk

Setjið skalottulaukinn í pott og rífið laufin af timjan og rósmarín niður og setjið saman við. Setjið svo smjörið og hinar kryddjurtirnar saman við og hitið við vægan hita, kryddið létt og látið malla þar til allt er mjúkt og glært, ekki brúna. Setjið sýrða rjómann og sinnepið í skál og þeytið saman. Hellið volgri kryddsmjörsblöndunni út í. Bætið svo sítrónusafanum ásamt vatninu saman við. Smakkið til og bætið við salti og pipar eftir smekk. Setjið allt saman í pott og haldið heitu við vægan hita.

Grillið folaldalundina og berið fram með frönskum kartöflum og heitri sósunni.

Vona að þið njótið vel.


En að lokum vil ég skora á son minn Héðinn Þór Gunnarsson að koma með uppskrift í næsta blað.

Nýjar fréttir