13.4 C
Selfoss

Rödd skólans sigraði nemendakosningar í Vallaskóla

Vinsælast

Á dögunum fóru fram nemendakosningar á unglingastigi Vallaskóla. Þar stofnuðu nemendur stjórnmálaflokka, unnu málefnaskrá og kynntu fyrir nemendum og starfsmönnum skólans. Framboðsfundur fór fram þar sem forsvarsmenn flokkanna kynntu málefnin og sátu fyrir svörum. Í kjölfarið fóru kosningar fram og varð flokkurinn Rödd skólans hlutskarpastur.

Samkvæmt venju fengu fulltrúar flokksins fund með stjórnendateymi skólans þar sem þeir gátu komið sínum helstu málum á framfæri sem og fengið svör við þeirra spurningum. Helstu málin sem nemendur stóðu fyrir voru úrbætur á skólalóð, grautur á morgnana, aðstaða fyrir nemendur í frímínútum og hádegishléum, meiri fjölbreytni í valáföngum, fjölbreyttari matur, bætt salernisaðstaða nemenda og skólabúðir og hvers vegna Árborg heimilar ekki að nemendur sæki þær.

Fundurinn var góður í alla staði og stjórnendur ánægðir með hversu virkt nemendalýðræði er við skólann og nemendur frambærilegir og málefnalegir.

Nýjar fréttir