Í október næstkomandi kemur út glæpasagan Moldin man eftir Þuríði Ósk Sigurbjörnsdóttur hjá forlaginu Veröld. Sagan gerist á Selfossi og í nærsveitum og er fyrsta skáldsaga höfundar.
Gröfumaður kemur óvænt niður á mannabein og skyndilega verður 35 ára gamalt mannshvarf á allra vörum í litlum bæ þar sem allir þekkja alla. Rannsóknarlögreglukonan Tófa stendur frammi fyrir því flókna verkefni að leysa gátuna, en sjálf er hún langt gengin með sitt fyrsta barn. Listgreinakennarinn Snæfríður, sem syrgir gamla vinkonu, býr yfir leyndarmáli sem hvílt hefur á henni um langt árabil. Og einhver fylgist grannt með henni.
Þuríður, eða Þurý eins og hún er alltaf kölluð, er 29 ára gömul, með meistaragráðu í ritlist og hefur áður skrifað smásögur sem hafa birst í bókum og tímaritum en Moldin man er fyrsta skáldverkið hennar í fullri lengd.
„Ég ætlaði ekkert að skrifa glæpasögu, þetta var eiginlega alveg óvart. Svolítið eins og velkomið slysabarn,“ segir Þurý.

Selfoss og nærsveitir er meginsögusvið bókarinnar. Hvers vegna var Selfoss fyrir valinu?
„Ég vissi frá byrjun að mig langaði ekki að vera í Reykjavík. Persónurnar tilheyrðu ekki höfuðborginni. En maðurinn minn og fólkið hans er frá Selfossi og ég fann strax fyrir sterkri tengingu við staðinn.“
Það verður blásið til útgáfuhófs í Pennanum Eymundsson í Austurstræti þann 21. október kl. 17. Útgáfuhófið er opið öllum.
Eftir útgáfuhófið verður Þurý á ferðinni á Suðurlandi og les upp úr nýju glæpasögunni. Vinnustaðir, kvenfélög, bókasöfn og aðrir sem vilja bóka hana í upplestur geta haft samband í gegnum netfangið: thuryosk97@gmail.com

