Jesúbarnið á Selfossi
Jólasaga sem gerist á Selfossi eftir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson er væntanleg í bókabúðir. Jón ólst upp í Fossheiði og í Suðurenginu og hefur hann skrifað stutta jólasögu sem gerist á Selfossi í kringum 1980.
Aðfangadagsmorgun árið 1980 fara þrjú systkini út í fjárhúsið á bak við blokkina í Fossheiði 58 til að gefa ánum. Í hlöðunni bíða þeirra þrír ókunnugir menn í grænum skikkjum. Þeir segjast vera vitringar frá Austurlöndum og hafa farið á milli fjárhúsa í bænum í leit að Jesúbarninu. Þannig hefst Þegar Jesúbarnið kenndi okkur að brúna kartöflur.
Þremur árum síðar liggur fjölskyldan í pest á aðfangadag. Feðgarnir standa ráðalausir í eldhúsinu með hamborgarhrygginn í ofninum, en hvorugur kann að brúna kartöflur. Klukkan sjö um kvöldið hringir dyrabjallan.
Selfoss eins og bærinn var
Gamlir Selfyssingar kannast kannski við sig í jólasögunni: blokkirnar í Fossheiði, Kaupfélag Árnesinga, Sundhöllina, svarthvíta sjónvarpið, bíla á keðjum og jólakveðjurnar á einu útvarpsstöð landsins. Og Dagskráin kemur við sögu, þegar nafnlaus lesandi skrifar blaðinu bréf um sauðaþjófnað í bænum.
„Eins og flestar æskuminningar var jólastemningin á Selfossi hlý og góð. Minningarnar eru fullar af músastigagerð í Barnaskólanum, rjóma, leikritum og jólatónlist,“ segir Jón Aðalsteinn. „Ingunn Þóra, umsjónarkennarinn okkar, las fyrir okkur í kaffihléum, við krakkarnir byggðum snjóhús og renndum okkur niður eina hólinn í bænum. Mér fannst eitthvert álíka kósíretrókrydd vanta í jólastemninguna í dag og ákvað að búa það til í formi sögu.“
Undanfarin tvö ár hefur hann skrifað stuttar og hlýlegar jólasögur sem hafa birst á sunnlenska.is með myndum Péturs Hrafns Valdimarssonar, sem er líka Selfyssingur.
Stutt bók fyrir annasama aðventu
Hugmyndin að því að gefa söguna út kviknaði þegar Jón Aðalsteinn heyrði Anne Carson, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í haust, segja að ljóð henti fólki vel af því að þau eru stutt og því gott að lesa þau í amstri dagsins. „Þá hugsaði ég að það væri gaman að gefa út stutta jólasögu. Hún er svo stutt að það er hægt að lesa hana á meðan sósan hitnar á hellunni eða á meðan þvottavélin er í vindingu. Af hverju að lesa langa og leiðinlega bók þegar hægt er að lesa stutta og skemmtilega?“
Bókin er líklega fyrsta jólasagan sem gerist á Selfossi. Hún er ætluð ungmennum og fullorðnum, og það má vel lesa hana fyrir börnin. Aftast í bókinni er uppskrift mömmu að brúnuðum kartöflum, svo enginn þurfi að standa ráðalaus í eldhúsinu á aðfangadag.
Jólakveðja til brottfluttra Selfyssinga
Bókin hentar vel í skóinn, í jólavinaleikinn og sem jólakveðja til vina og ættingja sem fluttu burt frá Selfossi. Hún kemur út fyrir jól og fæst í Bókakaffinu á Selfossi og í Reykjavík, í verslunum Pennans Eymundsson og á jolagledi.netlify.app, þar sem líka er hægt að fá hana senda heim.

Brot úr sögunni: Sauðaþjófnaður á Selfossi?
Þetta haust hafði stærðfræðin eitthvað flækst fyrir besta fólki. Hausatalning benti til að fé vantaði í hús. Erum við að tala um sauðaþjófnað hér? Á Selfossi af öllum stöðum? Hægan nú! Þetta var ekki Reykjavík þar sem húsdýrum var stolið á næstum hverju götuhorni. Eftir því sem leið á haustið fór fé að hverfa hvert á fætur öðru í ýmsum bæjarhlutum, gimbur úr Vallholti, fjögurra vetra hrútur af Kirkjuveginum og stöku lamb úr Ártúni. Þetta gekk auðvitað ekki. Dagskráin birti fréttir af málinu í hverri viku. Lesendur sendu inn bréf til að tjá sig um þennan hræðilega ósóma, að stela sauðum fólks. Fólk hafi ekki séð slíkt ódæði í langan tíma. Síðast hefði líklega sést til sauðaþjófa í Þjóðsögum Jóns Árnasonar.

Þarna undir lok árs 1980 sendi nafnlaus lesandi á Selfossi bréf í Dagskránna, þar sem hann sagði frá því að hann hefði heyrt af því að þrír menn hefðu sést á vappi í bænum síðustu vikur. […] Engin deili vissi hann á þessum mönnum. Hann vissi ekki hjá hverjum þeir störfuðu eða á vegum hverra þeir gætu verið þarna á vappi – nema ef vera kynni Votta eða Aðventista. Þeir hefðu verið svoleiðis á sig komnir. Trúarlegt yfirbragð á þeim. Ekki var vitað hvar þeir gistu eða hvort þeir þrifu sig almennilega því engar vísbendingar voru um að þeir hefðu sést í Sundhöll Selfoss.
Þetta haust afréðu sumir fjárhúsaeigendur að læsa hjá sér.
Slóð á forsölu bókarinnar: https://jolagledi.netlify.app/

