7 C
Selfoss

Nýr Jólamarkaður við Brúarstræti á Selfossi

Vinsælast

Jólamarkaður við Brúarstræti  verður haldinn allar fjórar aðventuhelgarnar og er markmiðið að skapa notalega jólastemningu í miðbæ Selfoss þar sem íbúar og gestir gegta komið saman, notið aðventunar og verslað fallegar vörur frá fjölbreyttum söluaðilum.

Við erum tvær vinkonur Þórunn Lilja og Sara Dögg sem stöndum bakvið þetta framtak. Hugmyndin kviknaði út frá löngun okkar til að sjá lí´flegan og skemmtilegan jólamarkað á Selfossi.

Viðtökurnar hafa heldur betur farið fram úr okkar björtustu vonum! Fjöldi umsókna hefur borist frá söluaðilum og fyrirtækjum, og áhuginn sýnir okkur að mikil eftirspurn er eftir svona viðburði á svæðinu og margir búnir að segjast hlakka til að koma á jólamarkað og segja loksins!

Markaðurinn verður innandyra og verður meðal annars boðið uppá fjölbreyttan varning, jólagjafir og heitt kakó. Við vonumst til að skapa fallega jólahefð sem geti vaxið og dafnað með árunum.

Jólamarkaðurinn við Brúarstræti er á samfélagsmiðlum svo hægt er að hafa samband þar og við veitum allar frekari upplýsingar með glöðu geði.

Með aðventujólakveðju, Þórunn Lilja og Sara Dögg

Nýjar fréttir