Bjarni Heiðar Joensen sýnir í galleríinu Undir stiganum.
Í síðustu viku opnaði sýning á verkum Þorlákshafnarbúans og myndlistarmannsins Bjarna Heiðars en hann varð 91 árs í haust og er jafnframt sá elsti sem hefur haldið sýningu í galleríinu. Á sýningunni eru olíumálverk frá ýmsum tímum en mörg þeirra tengjast þeim heimabyggð.
Bjarni hefur haldið sýningar víða og einnig tekið þátt í samsýningum, meðal annars í Færeyjum en hann á einmitt ættir að rekja þangað.
Hægt er að skoða sýninguna á opnunartíma Bæjarbókasafns Ölfuss í nóvember en flest verkanna eru til sölu.

