0 C
Selfoss

EKKO teymi FSu hlaut hvatningarverðlaun á degi gegn einelti

Vinsælast

EKKO teymi Fjölbrautaskóla Suðurlands hlaut hvatningarverðlaun á Degi gegn einelti 2026 fyrir metnaðarfullt og faglegt forvarnarstarf gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hlíðaskóla í Reykjavík föstudaginn 6. nóvember sl.

Undanfarin tvö ár hefur EKKO teymið unnið markvisst að því að efla forvarnir, fræða starfsfólk og tryggja nemendum aðgengi að stuðningi. Dómnefnd lagði meðal annars áherslu á hvernig teymið hefur virkjað nemendur og starfsfólk til þátttöku og skapað sameiginlega ábyrgð á jákvæðum samskiptum og öruggu skólaumhverfi.

Sérstaklega var verkefnið Jákvæður nóvember og útgáfa EKKO upplýsingabæklingsins nefnd sem dæmi um skapandi forvarnarstarf þar sem rödd nemenda fær að njóta sín.

EKKO teymið skipa Halla Dröfn Jónsdóttir skólafélagsráðgjafi FSu, Agnes Ósk Snorradóttir námsráðgjafi FSu, Anna Fríða Bjarnadóttir námsráðgjafi FSu og Bjarney Sif Ægisdóttir námsráðgjafi FSu. Við móttöku verðlaunanna lögðu þær áherslu á að forvarnastarf væri sameiginlegt verkefni alls skólasamfélagsins og þökkuðu nemendum sérstaklega fyrir þeirra framlag.

Nýjar fréttir