9.9 C
Selfoss

2,8 milljarða uppbygging hjá Reykjagarði á Hellu

Vinsælast

Framkvæmdir standa yfir við um 4.000 fermetra nýbyggingu Reykjagarðs á Hellu. Heildarfjárfestingin getur numið allt að 2,8 milljörðum króna og verður starfsemi sem nú fer fram á höfuðborgarsvæðinu flutt á Hellu.

Í nýja húsinu verða meðal annars hlutun, úrbeining, fullvinnsla, pökkun, frysting og kæling. Þá verður sett upp ný vinnslulína til steikingar og frystingar sem nú fer fram hjá SS á Hvolsvelli. Um 25 stöðugildi flytjast frá höfuðborgarsvæðinu.

Mynd: Aðsend.

Fyrsti áfangi byggingarinnar er kominn vel á veg. Stefnt er að því að húsið verði lokað í byrjun nóvember og að starfsemi í nýju vinnslunni hefjist um mitt ár 2027.

Vélbúnaður kemur meðal annars frá MAREL, GEA, Foodmate og ATT. Þjótandi ehf. annast jarðvinnu við framkvæmdina og BM Vallá framleiðir og reisir steyptar einingar. Þakvirki kemur frá Límtré Vírneti á Flúðum og gert er ráð fyrir að heimamenn annist pípu- og raflagnir. Aðalhönnuður hússins er Vigfús Halldórsson hjá Balsa ehf., byggingarstjóri er Þórður Smári Sverrisson hjá Verkmið ehf. og verkefnisstjórn af hálfu Reykjagarðs er í höndum Björns Stefánssonar hjá Gaddstöðum ehf.

Hjá Reykjagarði starfa um 140 manns, þar af 100–110 í Rangárvallasýslu. Framkvæmdin er því stór fjárfesting í atvinnustarfsemi á svæðinu og mikilvægt skref í uppbyggingu fyrirtækisins.

Nýjar fréttir