7.4 C
Selfoss

Teppa í alfaraleið

Vinsælast

Flestum er kunn nánast heilsársumferðarþröng um Selfoss, einkum á austurleið. Reyndar þekkt á annatímum, er tekur allt að 25 mín.+ að aka í gegn.

Tafir byrja nær Kambahlíðum er verst lætur, en hnökra við hringtorg Hveragerðis. Hver er ástæðan? Skoðum það: Einn, tveir, til þrír bílar plús á akrein Hveragerðis með umferðarrétti í hringtorgið skapa verulega biðhnökra austurumferðar.

Hér gætu lang- eða skammtímastillt umferðarljós verið lausn. Þá tekur við biðröðin undir Ingólfsfjalli, allt að hringtorgi við brúarenda Ölfusár.

Þar virðast ökumenn gjarnir á að bíða að óþörfu, í stað þess að velja strax „ytri“ hring. Innri hringsakstur leiðir umferð á akrein að hluta Austurvegar,

og götumerktur að verslunarkjarna. „Ytri“ hringur leiðir m.a. á Eyrarbakkaveg en annars á aðalgötu Austurvegar og þar með greiða leið til austurs.

Hér vantar vel merktan og augljósan vegvísi, staðsettan nær brúarenda eða á hringtorginu með ábendingu um greiðari nýtingu akreina hringtorgsins.

Texti gæti t.d. verið. 1.) Veljið innri hring að verslunarkjarna v. megin. 2.) Veljið ytri hring að Eyrarbakka- og Austurvegi, aðalleið til austurs!

Ég spyr sem tíður ökumaður um Selfoss! Er líklegt að finnist möguleg skammtímalausn til bóta uns byggingu brúarmannvirkja Ölfusár lýkur?

Þar til er ófyrirsjáanlegur tími, þrátt fyrir áætlanir þar um? Hér er væntanlega um málefni Vegagerðarinnar að ræða, jafnvel lögreglu, og annarra þeirra er vilja láta sig málið varða. Skjótra viðbragða er þörf, þótt fyrr hefði verið!

Þorberg Ólafsson

Nýjar fréttir