6.8 C
Selfoss

Góð stemning á Uppskeruhátíð Hrunamanna

Vinsælast

Hin árlega Uppskeruhátíð Hrunamanna fór fram á Flúðum síðastliðinn laugardag. Góð stemning var á hátíðinni þar sem gestum gafst tækifæri til að kynna sér og kaupa fjölbreyttar afurðir úr heimabyggð.

Boðið var upp á ýmislegt grænmeti og aðrar landbúnaðarafurðir auk handverks og listmuna. Uppskeruhátíðin hófst með uppskerumessu í Hruna en að henni lokinni tók við markaður í félagsheimilinu á Flúðum.

Hátíðin er árlegur viðburður sem gefur íbúum og gestum tækifæri til að fagna uppskeru ársins og styðja við framleiðendur og handverksfólk á svæðinu.

Myndir: Aldís Hafsteinsdóttir.

Nýjar fréttir