4.5 C
Selfoss

Nordic Affect í Stokkseyrarkirkju

Vinsælast

Nordic Affect er á leið í hljóðver og telur í með því að flytja efni plötunnar á sérstökum tónleikum í Stokkseyrarkirkju á morgun, miðvikudagskvöldið 2. september. Staðsetningin er úthugsuð því fyrir utan kirkjuna dunar Atlantshafið en tónlistin hverfist einmitt um hafið; barokkverk og þjóðlög í bland. Selshamur, hafballaða og sjóarar og margt fleira kemur við sögu en sérstakir gestir verða Ian Wilson blokkflautuleikari og Eyjólfur Eyjólfsson söngvari sem jafnframt leikur á langspil og hvannarflautu.

Tónleikar hefjast kl. 20. Dyr opna kl. 19:30

Aðgangur er 3.000 og 2.000 fyrir nemendur og eldri borgara.

Nýjar fréttir