Ný ’80s ábreiða er komin á YouTube-rás Hr. Eydís og Ernu Hrönn af laginu „Together in Electric Dreams“. Gestasöngvari er enginn annar en leikarinn og söngvarinn Björgvin Franz, stórvinur hljómsveitarinnar.
Lagið kom upphaflega út árið 1984 í tengslum við kvikmyndina Electric Dreams og var flutt af Phil Oakey, söngvara The Human League, og ítalska tónskáldinu og upptökustjóranum Giorgio Moroder.
„Together in Electric Dreams“ varð fljótt mun stærra en kvikmyndin sjálf og hefur fyrir löngu öðlast sjálfstætt líf sem einn af eftirminnilegri poppsmellum níunda áratugarins.
Giorgio Moroder var á þessum árum einn helsti maðurinn í popp- og kvikmyndatónlist og kom meðal annars að tónlist úr kvikmyndum á borð við Flashdance, Top Gun og Scarface.
Með Hr. Eydís og Ernu Hrönn er, eins og áður segir, Björgvin Franz og að sögn sveitarinnar lá beinast við að fá hann með í þetta lag.
„Björgvin er góður vinur Hr. Eydísar og þetta lag hreinlega kallaði á hann. Það var rosalega gaman að renna í þetta með honum og þetta smellpassar auðvitað inn í Movie Hits þemað hjá okkur í haust“ segir Örlygur Smári, einn meðlima Hr. Eydísar.
Útgáfan tengist hausttúr sveitarinnar, ALVÖRU ’80s PARTÝ – Movie Hits, þar sem áherslan verður á lög úr kvikmyndum níunda áratugarins. Miðasala er nú í fullum gangi.
Hr. Eydís kemur fram á Akureyri 10. október, Selfossi 17. október og í Háskólabíói í Reykjavík 7. nóvember.
Nánari upplýsingar um tónleikana og miðasölu má finna á heimasíðum viðkomandi tónleikastaða og miðasölusíðum.
Hlusta á lag:Together in Electric Dreams



