„Í ár á félagið 75 ára afmæli og við viljum nýta þau tímamót til að þakka þessum dyggu stuðningsaðilum, mánaðarlegum styrktaraðilum, öðrum velunnurum, sjálfboðaliðum og félagsmönnum aðildarfélaga um allt land – þar á meðal félögum í Krabbameinsfélagi Árnessýslu – sem er eitt öflugasta aðildarfélag Krabbameinsfélagsins. Það er jú þessi dýrmæti stuðningur sem gerir okkur kleift að halda úti okkar mikilvægu starfsemi,“ segir Árni reynir Alfreðsson í samtali við Dagskrána.
Viðburðurinn er ætlaður að fagna áföngum sem hafa náðst, njóta góðra veitinga og skemmtiatriða frá Jóni Ólafssyni tónlistarmanni, sem verður veislustjóri og Hildi Völu Einarsdóttur, söngkonu.
„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn. Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðninginn í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning. Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Hægt er að skrá sig á afmælishátíð Krabbameinsfélag Íslands hér:
Skráðu þig á viðburðinn:75 ára afmæli Krabbameinsfélags Íslands


