10.6 C
Selfoss

Einu sinni á ágústkvöldi – Ástin og Ísfólkið

Vinsælast

Fimmtudagskvöldið 27. ágúst kl. 19:30 verður rómantískur bókmennaviðburður á bókasafninu á Selfossi. Þá mæta bókmenntafræðingarnir Katrín Jakobsdóttir sem ætlar að fjalla um ástarsögur á sinn skemmtilega hátt og Brynhildur Björnsdóttir sem ætlar að segja okkur allt um sínar uppáhaldsbækur Ísfólkið.

Þetta er í annað sinn sem rómantíkin tekur völdin á safninu í ágústmánuði og það má þakka Bókasafnasjóði sem gaf hugmyndinni byr undir báða vængi með myndarlegum styrk á síðasta ári.

Léttar veitingar og fallegir harmonikkutónar munu einnig gleðja gesti og að sjálfsögðu eru öll hjartanlega velkomin.

Nýjar fréttir