10.6 C
Selfoss

Plokkvinafélag Zo-On á Selfossi býður bæjarbúum með að plokka

Vinsælast

Plokkvinafélag Zo•On á Selfossi var stofnað vorið 2026 og hefur plokkað reglulega í allt sumar enda er þörfin mikil í stækkandi bæjarfélagi. Meðlimir plokkvinafélagsins bjóða öllum sem hafa áhuga á að koma með að plokka í dag, þriðjudag 25. ágúst kl 17-18.

Hópurinn hittist í verslun Emil&Lína og Zo•On við Larsenstræti 2 upp úr 16:30 og gengur þaðan í fylgd formanns félagsins, Elínar Birnu, en Elín er þaulvanur plokkari og leiðir hópinn að góðu plokksvæði. ,,Það er mikilvægt að plokka til þess að halda umhverfinu snyrtilegu og ef allir ganga vel um þá verður allt betra – en þá þurfa allir að taka þátt! Þetta er líka bara svo gaman, að skella sér í gönguferð og plokka í leiðinni, þetta er góð útivist líka.’’ segir Elín Birna.

Elín Birna. Mynd: Aðsend.

Engin skráning er nauðsynleg og allir eru velkomnir. Við hvetjum foreldra sérstaklega til að mæta með börnin með sér og nýta tækifærið í samveru utandyra, og til að kenna börnunum mikilvægi þess að hugsa vel um umhverfið okkar. ,,Það er alveg nauðsynlegt að hafa börnin með og kenna þeim að ganga vel um umhverfið og henda ekki drasli, ég veit um börn sem taka rusl með sér ef þau sjá það, sem er frábært.’’ tekur Elín Birna undir en hún er frábær fyrirmynd fyrir bæði börn og fullorðna.

Tínur og pokar verða á staðnum fyrir alla þátttakendur og Zo-On býður upp á kaffi, safa og kleinur áður en haldið er af stað.

Aðspurð hvort hún sé spennt fyrir morgundeginum segir Elín Birna ,,Mjög spennt, spáin er góð og ég vona að fólk mæti. Við tökum gönguferð og plokkum í leiðinni því þetta er svo skemmtilegt!’’

Plokkvinafélag Zo-On heldur úti facebook hópi og hvetur fólk til að gerast meðlimir hér: https://www.facebook.com/share/g/18JgYSNYCD/?mibextid=wwXIfr til fylgjast með framvindu félagsins og framtíðar viðburðum.

Mynd: Aðsend.
Mynd: Aðsend.

Nýjar fréttir