16 C
Selfoss

Selfoss og Jón Daði rifta samningi

Vinsælast

Knattspyrnudeild Selfoss og Jón Daði Böðvarsson hafa komist að samkomulagi um að rifta samningi sín á milli.

Frá komu Jóns Daða til Selfoss hafa aðilar lagt sig fram af heilindum og metnaði í þágu félagsins. Eftir yfirferð á stöðu mála og með hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi hafa félagið og leikmaðurinn komist að gagnkvæmu samkomulagi um að ljúka samstarfi sínu. Riftun samningsins er gerð í fullri sátt og með gagnkvæmri virðingu að leiðarljósi.

,,Ég hafði mikinn áhuga á því að hjálpa til við að byggja upp starfið á Selfossi. Allt á sinn tíma, og taldi ég þetta rétt í stöðunni. Þrátt fyrir að leiðir skilji núna mun ég alltaf líta hlýjum augum til fólksins í Selfoss og óska félaginu alls hins besta í framtíðinni,” segir Jón Daði við þessi tímamót.

Guðjón Bjarni Hálfdánarson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, þakkar Jóni tímann á Selfossi.

„Frá fyrsta degi var markmiðið að Jón Daði myndi hjálpa til við að byggja upp félagið á komandi árum.  Jón Daði hefur sýnt mikinn metnað á meðan krafta hans naut við. Jón Daði skilur eftir sig dýrmæta þekkingu hjá félaginu og munum við halda áfram á okkar vegferð að byggja upp öflugt félag í íslenskri knattspyrnu,” segir Guðjón.

Félagið vill færa leikmanninum þakkir fyrir störf sín í þágu þess og óskar honum farsældar í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.

Nýjar fréttir