16.8 C
Selfoss

Saumklúbbs brauðréttur og nautakjötssúpa

Vinsælast

Ásgerður Sjöfn Guðmundsdóttir er matgæðingur vikunnar.

Takk fyrir áskorunina, hér eru sáraeinfaldar uppskriftir sem henta öllum.

Saumaklúbbsbrauðréttur

  • 3/4 brauð (með eða án skorpu)

  • 1 lítil dós mæjónes

  • 1 dós sýrður rjómi 10%

  • 1 dós niðursoðinn ananas í bitum ásamt safa eftir smekk

  • 500 g litlar rækjur

  • Sítrónupipar eftir smekk

  • 1 stk. Camembert-ostur, skorinn í bita

  • 1 stk. rauð paprika, skorin í bita

  • Slatti af vínberjum

Byrjað er á að rífa brauðið niður í skál, skera papriku, vínber og Camembert-ostinn í bita og setja til hliðar.

Brauðinu er svo blandað saman við sýrða rjómann, mæjónesið, rækjurnar, sítrónupiparinn, ananasinn í bitum og safann.

Þessu er svo blandað saman við brauðið sem er skreytt með Camembert-osti, vínberjum og paprikunni. Svo er þetta sett í mót.

Látið standa í 1 klukkustund – 1 sólarhring, því lengur því betra!

Nautakjötssúpa

  • 400 g nautakjöt, t.d. gúllas

  • 2-3 gulrætur

  • 2 laukar

  • 10 sveppir

  • 1/2 haus blómkál

  • 1 paprika

  • 1 dós niðursoðnir tómatar

  • 1 L vatn

  • Kjötkraftur, salt og pipar

Skerið kjötið í litla bita.

Sjóðið kjötið og tómatana í vatninu við vægan hita í 1 klukkustund.

Grænmetið er skorið smátt og látið malla með síðustu 10 mín.

Bragðbætt með kjötkrafti, salti og pipar.

Borið fram með brauði.

Næst skora ég á Martinu Sardu, sem er flink að elda og baka.

Nýjar fréttir