Tvö HSK-met voru slegin í Brúarhlaupinu sem fram fór á Selfossi síðastliðinn laugardag. Hólmfríður Magnúsdóttir og Gerður Árnadóttir bættu báðar met í fimm kílómetra götuhlaupi.
Rangæingurinn Hólmfríður Magnúsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu sem nú er búsett á Selfossi, hljóp á 23 mínútum og 55 sekúndum. Hún sigraði þar með sinn aldursflokk, 40–44 ára, og bætti eigið HSK-met um þrjár sekúndur.
Hólmfríður setti fyrra metið í ágúst á síðasta ári þegar hún hljóp vegalengdina á 23 mínútum og 58 sekúndum. Þá bætti hún met Guðrúnar Erlu Gísladóttur frá Selfossi, sem hljóp á 24 mínútum og fimm sekúndum á Akureyri árið 2013.
Gerður Árnadóttir bætti einnig HSK-met í fimm kílómetra götuhlaupi, í flokki 60–62 ára. Hún kom í mark á 28 mínútum og 43 sekúndum og bætti fyrra metið um rúmar tvær mínútur. Elísabet Valtýsdóttir átti gamla metið, 31 mínútu og sex sekúndur, sem hún setti árið 2012.
Öll úrslit Brúarhlaupsins má nálgast á vef Tímatöku.

