Bryndís Embla Einarsdóttir keppti á heimsmeistaramóti U20 í frjálsum íþróttum sem fram fór í Portland í Oregon í Bandaríkjunum dagana 5.–9. ágúst.
Bryndís Embla keppti í undankeppni í spjótkasti föstudaginn 7. ágúst og kastaði lengst 48,64 metra. Hún var aðeins 45 sentímetrum frá því að tryggja sér sæti í úrslitum og hafnaði í 16. sæti.
Heimsmeistaramót U20 er stærsta mót heims í þessum aldursflokki og er árangur Bryndísar Emblu sérstaklega glæsilegur í ljósi þess að hún er enn tæplega 17 ára. Það er því mikið afrek að hafa náð lágmarki inn á mótið og verið svo nærri sæti í úrslitum.

