Tvær sýningar á verkum Jóns Magna Ólafssonar voru opnaðar í Listagjá og Sundhöll Selfoss fimmtudaginn 6. ágúst. Sýningarnar standa yfir til 14. september.
Jón Magni er fæddur í Reykjavík árið 1943 en hefur verið búsettur á Selfossi frá árinu 1983. Hann er mjólkurfræðingur að mennt og félagi í Myndlistarfélagi Árnessýslu.
Jón Magni hefur sótt fjölmörg námskeið í málun og teikningu og haldið nokkrar sýningar í gegnum tíðina, bæði einn og ásamt öðrum listamönnum. Verkin sem nú eru til sýnis eru unnin með olíu og krít.

