Allar björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út um klukkan níu í gærkvöldi vegna ferðamanns sem hafði slasast á fæti í gilinu neðan við Háafoss.
Maðurinn var einn á ferð þegar óhappið varð og ekkert símasamband var á staðnum. Annar hópur ferðamanna gekk fram á manninn og færði sig á stað þar sem hægt var að ná símasambandi og kalla eftir aðstoð. Ekki er vitað hversu lengi maðurinn hafði verið slasaður þegar komið var að honum.
Ljóst var frá upphafi að erfitt yrði að koma manninum úr gilinu og var þyrla Landhelgisgæslunnar því einnig kölluð á vettvang. Þegar þyrlan kom á staðinn varð ljóst að flytja þyrfti manninn um nokkurn spöl áður en hægt væri að hífa hann um borð. Undanfarar björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu voru því boðaðir og hélt þyrlan aftur til Reykjavíkur til að taka eldsneyti og sækja þá.
Um hálf eitt í nótt hafði um 20 manna hópur björgunarmanna úr björgunarsveitum í Árnessýslu komist að manninum. Í kjölfarið var ákveðið að flytja hann á börum að sjúkrabíl.
Björgunaraðgerðum lauk um klukkan tvö í nótt og var maðurinn þá fluttur til aðhlynningar. Björgunarsveitir tóku einnig að sér að koma bifreið hans til byggða.

