10.5 C
Selfoss

Moskvít sendir frá sér nýtt lag – Kalt og grúví rokk innblásið af pabba-gulli

Vinsælast

Hljómsveitin Moskvít hefur gefið frá sér nýja smáskífu sem ber heitið „Reyna“. Lagið er kraftmikið rokkbanger sem rúllar af stað á feitu og grúví bassa-riffi. Þó að textinn hljómi við fyrstu hlustun sem dramatísk lýsing á algjörri örvæntingu og kulda, leynist þar bitur og kaldhæðin ádeila á fólk sem festist í eigin volæði og gerir sig að fórnarlambi.

Hugmyndin að laginu á sér hins vegar bráðskemmtilega og raunverulega bakgrunns sögu. Hún kviknaði þegar Sjonni Arndal, söngvari og bassaleikari sveitarinnar, var að viðra svekkelsi sitt við föður sinn yfir því að hljómsveitin væri ekki að fá nóga spilun í útvarpinu þrátt fyrir að vera „alltaf að reyna“. „Svarið frá pabba var stutt, lagott og beint til baka: „Nei, þú hefur ekkert verið að reyna neitt af viti,“ segir Sjonni og hlær. „Úr varð þetta lag um fólk sem afsakar stöðnun sína með því að segjast vera að reyna, án þess að gera neitt í raun og veru. Við vonum bara innilega að pabba fari að skjátlast með þessari útgáfu.“ Tryggir sínu fólki í bak og fyrir.

Moskvít leggur ríka áherslu á tryggð við samstarfsfólk sitt þegar kemur að hljóðversvinnu. Lagið var tekið upp af Kjartani í Dynur stúdíó í Hveragerði og hljómjafnað (masterað) af Sigurdóri hjá Skonrokk Mastering. Sveitin segist gríðarlega lánsöm að vinna með sínum föstu mönnum, sem tryggir að sándið sé alltaf nákvæmlega eins þétt og þeir vilja hafa það.

Tímamót í gítardeildinni

Lagið „Reyna“ markar ákveðin tímamót og lokar ákveðnum kafla hjá sveitinni. Á gítar í laginu spilar Haraldur Helgi Agnarsson, sem starfaði með Moskvít í tæpt ár. Á þeim tíma hljóðritaði hann þrjú lög með strákunum; „Þú átt eitthvað bágt“, smáskífuna „Reyna“ og eitt lag til viðbótar sem væntanlegt er á næstunni. Moskvít færir Haraldi gríðarlegar þakkir fyrir gítarriffin og frábæran tíma, á sama tíma og þeir bjóða nýjan mann, Aron Karl, velkominn í hópinn á gítar.

Slegið upp Jónsmessufjöri á Eyrarbakka

Samhliða útgáfunni ætlar Moskvít að fagna nýja laginu með kraftmiklum tónleikum í Rauða húsinu á Eyrarbakka þann 27. júní næstkomandi. Tónleikarnir hefjast strax eftir hina klassísku Jónsmessubrennu á staðnum. Þetta verður sannkölluð stórstund fyrir hljómsveitina þar sem nýi gítarleikarinn, Aron Karl, stígur á svið með sveitinni í allra fyrsta sinn. Moskvít hefur áður vakið athygli fyrir plöturnar Human Error og Superior Design. Sveitina skipa þeir Sjonni Arndal (söngur og bassi), Alexander Örn (trommur), Jón Aron (píanó og synthar), Guðmundur Helgi (gítar) og Aron Karl (gítar). Lagið verður aðgengilegt á öllum helstu streymisveitum 26. júní.

Nýjar fréttir