Matgæðingur vikunnar er Bjarki Freyr Sigurjónsson.
Mér barst sú áskorun frá Olgu að verða matgæðingur vikunnar hjá Dagskránni og skorast ég að sjálfsögðu ekki undan því.
Rababarapæ
Núna þegar rababarinn sprettur upp í görðum landsmanna þá er gott að vita til þess að hægt sé að nýta þessa frábæru jurt í fleira en bara sultu og því er það alveg ómótstæðilegt eftir að hafa borðað á sig gat af grillkjötinu frá SS og kartöflusalatinu úr Þykkvabænum að láta aðeins sjatna í magnaum og skella svo í glæstan eftirrétt.
2 dl haframjöl
2 dl sykur
1 3/4 dl hveiti
1/2 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Vanillusykur
1 stk. hnífsoddur salt
125 g smjör
1/2 dl rjómi
1/2 dl ljóst síróp
500 g rababari
Byrjið á að hita ofninn í 150°C undir yfir
Blandið öllum þurrefnum í skál.
Bræðið smjörið í potti með rjómanum og sírópinu og blandið svo saman við þurrefnin.
Hreinsið og skerið rababarann í 2 cm breiða bita. Setjið þá í smurt eldfast mót. Breiðið svo deigið jafnt yfir rababarann. Látið inn í ofn og bakið í 40-50 mín þar til deigið er fallega gullið. Toppurinn á „ísjakanum“ er svo að sjálfsögðu að bera pæið fram með ís frá Valdísi á Hvolsvelli!
Verði ykkur að góðu.
Ég skora svo á kollega minn í faginu, Björgvin Bjarnason, um að græja fyrir okkur einhverjar ljúffengar kræsingar fyrir næsta tölublað.

