Nýir skólastjórnendur hafa verið ráðnir að Tónlistarskóla Árnesinga frá 1. ágúst 2026. Það eru þau Stefán Haukur Gylfason skólastjóri og Pamela De Sensi aðstoðarskólastjóri.
Stefán Haukur er með B.M. gráðu í klassískum gítarleik og meistaragráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands auk diplóma í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands.

Pamela er með meistaragráðu í þverflautuleik frá Listaháskólanum í Flórens og Listaháskólanum í Campobasso og meistaragráðu í kammertónlist frá Listaháskólanum í Róm.
Bæði eru þau með mikla og víðtæka reynslu af kennslu og stjórnun.
Tónlistarskóli Árnesinga óskar nýjum skólastjórnendum innilega velfarnaðar í nýjum störfum og hlökkum til að sjá þá fersku vinda sem þau blása í segl tónlistarskólans.

