Sýningin Bátar og býli var opnuð í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka á föstudaginn var.
Á sýningunni eru fagurlega smíðuð líkön af bátum og skipum ásamt áhugaverðum líkönum af byggingum úr Árnessýslu. Þar má sjá þrjú skipslíkön eftir hinn þekkta skipasmið Stein Guðmundsson í Steinsbæ á Eyrarbakka, líkan af bátnum Vonfrá Þorlákshöfn eftir Vilhjálm Hinrik Ívarsson og fleiri báta eftir minna þekkta hagleiksmenn.
Fjölbreytt húsalíkön eru á sýningunni eins og stórt líkan af Stöng í Þjórsárdal smíðað af listamanninum Magnúsi Pálssyni, smágert líkan af Áslækjarrjómabúi í Hrunamannahreppi eftir Ingimund Einarsson og einstak líkan af Birtingaholti gert af Sigurfinni Sigurðssyni löngu eftir að sjálfur bærinn brann árið 1951.
Sýningin er lítil glufa inn í heim módelsmíða þar sem handverk hagleiksfólks og fagmanna kemur saman og birtir okkur smækkaða mynd af manngerðri veröld.
Safnið er opið alla daga í sumar. Aðgangseyrir í safnið er ársmiði.


