Fjölmenni heimsótti Hrunamannahrepp um síðastliðna helgi í tilefni af því að þá fögnuðu Hrunamenn því að 1150 ár eru liðin frá upphafði byggðar í Hrunamannahreppi. Hrunamannahreppur er elsta hreppanafn landsins sem varðveist hefur allt frá landnámsöld en það á rætur að rekja til Hruna, hins forna höfðingjaseturs, en þeir sem þar bjuggu voru kallaðir Hrunamenn, rétt eins og íbúar Hrunamannahrepps í dag.
Dagskrá afmælisdagsins hófst með heimsókn forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og eiginmanns hennar Björns Skúlasonar en þau heimsóttu Gömlu laugina, Flúðasveppi og VISS áður en þau komu í Félagsheimili Hrunamanna þar sem fjölmenni tók á móti þeim hjónum og formleg hátíðardagskrá hófst. Dagurinn var síðan þéttskipaður viðburðum, veitingum, gleði og samverustundum en gestir nutu einstakrar veðurblíðu alla helgina.
Vel sótt var á stórtónleikana sem voru haldnir í Félagsheimilinu á laugardag þar sem topp listamenn frá Hrunamannahreppi komu fram ásamt hljómsveit. Að tónleikum loknum héldu hátíðarhöldin áfram í nýja veitingahúsinu Grund sem opnaði dyr sínar í fyrsta skipti sl. föstudag eftir að nýir eigendur tóku við.
„Greinilegt var að bæði íbúar og gestir voru ánægðir með daginn og haft var á orði að það yrði nú gaman að fá að taka þátt í 1200 ára afmæli Hrunamannahrepps þegar þar að kemur,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, í samtali við Dagskrána.












