10.2 C
Selfoss

Egill Blöndal Norðurlandameistari!

Vinsælast

Norðurlandameistaramótið í júdó fór fram í Finnlandi um helgina 13.júní. Ísland sendi fjölmennan og vaskan hóp til leiks, en alls ferðuðust um 22 keppendur utan ásamt fríðu föruneyti þjálfara og aðstoðarmanna.

Hópurinn stóð sig með prýði og kepptu í flokkum cadet(U18), juniora(U21) og seniora.

Stærstu fréttir helgarinnar litu dagsins ljós í -100 kg flokki fullorðinna (seniora). Egill Blöndal, keppandi frá Ungmennafélagi Selfoss, kom með endurkomu í judo.  Hann vann allar sínar viðureignir á köstum.

Egill Blöndal á verðlaunapalli. Mynd: Aðsend.

 Með þessari frammistöðu tryggði hann sér Norðurlandameistaratitilinn sem hann vann seinast 2023 sem einnig var síðasta sinn sem hann keppti erlendis.

Þetta voru einu gullverðlaun Íslands í fullorðinsflokki á mótinu í ár en Aðalsteinn Björnsson frá JR vann brons í sterkum -90kg flokki og Weronika Komendera fékk silfur í -52kg.

Daginn eftir var keppt í U21 þar fengu Aðalsteinn Björnsson gull í -90kg, Viktor Kristmundsson gull -100kg, Helena Bjarnadóttir brons -70kg og Arnar Arnarsson  brons +100kg.

Nýjar fréttir