18.4 C
Selfoss

35 alþjóðlegir listamenn koma saman á Eyrarbakka

Vinsælast

Fimmta útgáfa Oceanus fer fram á Eyrarbakka dagana 15. maí til 15. júní, en í ár ber verkefnið heitið Stórsjór. Um 35 listamenn víðs vegar að úr heiminum taka þátt í mánaðarlangri listamannadvöl sem lýkur með sýningum, gjörningum, tónlistarviðburðum, opnum vinnustofum og fjölbreyttri dagskrá fyrir almenning.

Á aðeins fimm árum hefur Oceanus fest sig í sessi sem sérstakur vettvangur fyrir samtímalist á Íslandi. Verkefnið er listamannarekið og byggir á samveru, samstarfi og sterkri tengingu við staðinn. Á hverju ári umbreytist Eyrarbakki í lifandi listamannasamfélag þar sem ný verk, samtöl og tengsl verða til í nánu samtali við sögu þorpsins, náttúru þess og íbúa.

„Eyrarbakki er minn jarðvegur – þar næ ég tengingu við rætur mínar og næ að næra þær til að vaxa og dafna. Stærsti draumurinn var þó alltaf að skapa jarðveg til listsköpunar fyrir fleiri en mig sjálfa; að deila þessum sögufræga og töfrandi stað með öðrum, vinna með samfélaginu og skapa vettvang þar sem fólk getur hist, lært hvert af öðru og byggt upp tengsl. Krafturinn sem myndast þegar fólk vinnur saman í sköpun og kærleik er ótrúlegur,“ segir Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi Oceanus.

Oceanus hófst árið 2022 í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga og hefur síðan vaxið sjálfstætt ár frá ári. Þátttakendur koma úr ólíkum greinum lista, meðal annars myndlist, ljósmyndun, vídeólist, tónlist, dansi, sviðslistum, gjörningalist og textíl. Á meðan á dvölinni stendur vinna listamennirnir saman, deila reynslu og þróa ný verkefni undir áhrifum frá umhverfi, sögu, fólki og hver öðrum.

Sérstaða Oceanus felst ekki síst í þeim kynnum sem verða til milli listamanna, heimafólks og gesta. Á Eyrarbakka myndast tímabundið samfélag þar sem fólk deilir tíma, samtölum, þekkingu og reynslu. Listamennirnir sækja innblástur í sögu staðarins, náttúruna og hversdagslífið, á meðan íbúar og gestir fá innsýn í listrænt ferli sem er enn í mótun.

Í tilefni af fimm ára afmæli Oceanus kemur jafnframt út ný bók sem rekur sögu verkefnisins frá upphafi. Bókin er um 100 blaðsíður og hefur að geyma ljósmyndir, sögur og hugleiðingar sem fanga andrúmsloft hátíðarinnar og þau tengsl sem hafa myndast í gegnum árin. Þar er fjallað um listaverkin, fólkið, samtölin og samfélagið sem hefur vaxið í kringum verkefnið. Bókin verður kynnt samhliða hátíðinni og er nú fáanleg í forsölu. Allur ágóði af útgáfunni rennur til að standa straum af prent- og hönnunarkostnaði.

Heiti hátíðarinnar í ár, Stórsjór, vísar til ölduhæðar sjávar og er um leið myndlíking fyrir þann kraft sem verður til þegar fólk kemur saman til að skapa, deila reynslu og mynda ný tengsl.

Opnunarhátíð Oceanus Stórsjór fer fram á Eyrarbakka laugardaginn 13. júní kl. 13–18. Sýningarhelgar verða 13. og 14. júní og 20. og 21. júní kl. 13–18.

Nánari upplýsingar um þátttakendur, dagskrá og bókaútgáfu má finna á www.oceanushafsjor.com.

Nýjar fréttir