Golfhátíð U14 fór fram dagana 11.-12. júní sl. á Flúðum. Mikil gleði ríkti á Selsvelli og á Flúðum dagana tvo, þar sem ungir kylfingar komu saman, léku sér, æfðu og nutu samverunnar í frábæru umhverfi. 115 krakkar tóku þátt ásamt þjálfurum og voru nokkrir foreldrar með í för. Völlurinn skartaði sínu fegursta og veðrið lék við þátttakendur báða dagana.
Gist var í Íþróttahúsinu á Flúðum og dagskráin var fjölbreytt frá morgni til kvölds. Farið var í sund, leiki og alls kyns þrautir, auk þess sem þátttakendur fengu að kynnast golfíþróttinni á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt.
Morgun-, hádegis- og kvöldmatur var í boði í golfskálanum og var öll umgjörð til mikillar fyrirmyndar.
Í stað þess að leika hefðbundinn 9 eða 18 holu hring var Selsvelli skipt upp í margar stöðvar. Þar fengu þátttakendur meðal annars að spila, æfa vipp og slátt undir handleiðslu landsliðs- og atvinnukylfinga. Einnig var settur upp púttvöllur og fótboltagolfvöllur sem reyndust mjög vinsælir á meðal krakkanna.





