12.6 C
Selfoss

Sjálfstæðisflokkurinn í Árborg leiðir nýja bæjarstjórn Árborgar

Vinsælast

Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Árborg hefur tekið formlega til starfa í kjölfar fyrsta bæjarstjórnarfundar sem fór fram 3. júní sl. Leiðarljós Sjálfstæðisflokksins í Árborg er að auka hagsæld sveitarfélagsins, byggja upp öflugt atvinnulíf og létta undir og bæta daglegt líf okkar íbúa.

Bragi Bjarnason verður áfram bæjarstjóri

Embættisskipan verður á þann veg að Bragi Bjarnason heldur áfram sem bæjarstjóri næsta kjörtímabil. Sveinn Ægir Birgisson verður formaður bæjarráðs og Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar.

Formenn helstu fagnefnda sveitarfélagsins verða:

  • Linda Björk Hilmarsdóttir, formaður skipulagsnefndar og velferðarnefndar
  • Sveinn Ægir Birgisson, formaður eigna- og veitunefndar
  • Brynhildur Jónsdóttir, formaður fræðslu- og frístundanefndar
  • Þórhildur Ingvadóttir, formaður umhverfisnefndar og öldungaráðs
  • Kjartan Björnsson, formaður nýrrar menningarnefndar sem verður skipuð á næsta fundi bæjarstjórnar

„Við erum þakklát íbúum fyrir traustið og munum starfa áfram að heilindum fyrir alla íbúa í Sveitarfélaginu Árborg. Höfum trú á góðri samvinnu innan bæjarstjórnar að þeim tækifærum sem eru fyrir Árborg á næstu árum. Saman náum við betri árangri.“

Mikil tækifæri í Árborg til framtíðar

Skýr framtíðarsýn er forsenda þess að sveitarfélagið megi vaxa og dafna. Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna að því að létta róðurinn og tryggja ábyrga fjármálastjórn sem skili sér í lægri álögum á íbúa og fyrirtæki. Stefnan er að byggja upp fjölbreytt atvinnulíf og sterka innviði í fjölskylduvænu samfélagi þar sem íbúar á öllum aldri geta sótt þjónustu og fengið störf við hæfi. Þá ætlum við að standa fyrir uppbyggingu útivistar- og frístundasvæða sem munu bæta lífsgæði okkar íbúa til lengri tíma.

Bæjarstjóri ásamt öðrum bæjarfulltrúum D-listans munu vinna þétt saman með öðrum bæjarfulltrúum að þeim verkefnum og tækifærum sem eru framundan í sveitarfélaginu. Saman munum við ná betri árangri fyrir Árborg okkar allra.

Bragi Bjarnason
Sveinn Ægir Birgisson
Linda Björk Hilmarsdóttir
Brynhildur Jónsdóttir
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Kjartan Björnsson

Nýjar fréttir