Í gær skrifuðu þjálfarar meistaraflokka karla og kvenna hjá Selfoss körfu undir samninga um að stýra liðunum á komandi keppnistímabili.
Bjarmi Skarphéðinsson og Eyþór Orri Árnason hafa framlengt samninga sína við félagið en þeir stýrðu meistaraflokki karla saman á síðasta tímabili. Undir þeirra stjórn sýndi liðið góða framvindu og munu þeir áfram leiða uppbyggingu karlaliðsins á komandi tímabili.
Þá hefur Geir Helgason verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Geir gegndi hlutverki aðstoðarþjálfara kvennaliðsins á síðasta tímabili og þekkir því vel til leikmannahópsins og starfseminnar.
Stjórn Selfoss Körfu fagnar því að tryggja áframhaldandi stöðugleika í þjálfun meistaraflokkanna og hlakkar til samstarfsins á komandi tímabili. Með reynslu sinni af starfi innan félagsins og góðri þekkingu á leikmönnum eru Bjarmi, Eyþór og Geir vel í stakk búnir til að leiða liðin inn í spennandi tímabil.



