Áhugi á fimleikum hefur farið vaxandi í Uppsveitunum undanfarin tvö ár síðan fimleikadeildin var endurvakin. Í dag æfa um 65 börn og ungmenni á aldrinum 5–15 ára hjá deildinni hér í Hrunamannahreppi. Starfið nær út fyrir Hrunamannahrepp því iðkendur koma einnig úr Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Bláskógabyggð. Vegna þessarar góðu þátttöku kallar deildin sig gjarnan Fimleika Uppsveita.
Krakkarnir sýna starfinu mikinn áhuga og nýtur deildin góðs af því að hafa kröftuga og metnaðarfulla þjálfara, þær Önnu Grétu og Huldu Brá. Nú í vor bættist svo við aukaþjálfari, hún Aðalheiður Skúla. Eins er frábært hve mikinn stuðning foreldra hópurinn hefur sýnt starfinu.
Til að mæta þörfum deildarinnar var fjárfest í nýju loftgólfi og dýnum síðasta sumar, þar sem eldri búnaður var orðinn úreltur. Nýi búnaðurinn hefur nýst vel við æfingar í vetur og styrkt starfsemina. Þátttaka og mæting var sömuleiðis góð á jólasýningu deildarinnar í desember, þar sem iðkendur sýndu afrakstur haustsins.
Í janúar síðastliðnum sendi stjórn fimleikadeildarinnar erindi til sveitarstjórnar Hrunamannahrepps vegna þess hve deildin hefur vaxið hratt. Þar var óskað eftir því að kannaðir yrðu möguleikar á sérhæfðu rými fyrir fimleika aðstöðu í framtíðinni. Sveitarstjórn tók jákvætt í erindið og samþykkti að kanna þessa möguleika, sem eru ánægjuleg tíðindi. Góð þátttaka hefur verið í vetur og vonast er til að hún haldist áfram á næsta starfsári.
Fimleika árinu lauk svo með vorferð laugardaginn 30. maí með heimsókn í Mosfellsbæ þar sem krakkarnir fengu að spreyta sig í fimleikahúsi Aftureldingar. Eftir æfinguna var boðið upp á Subway samlokur og ferðinni lokið með sundferð í Lágafellslaug. Skemmtileg og eftirminnileg ferð!
Stjórn og þjálfarar Fimleika Uppsveita þakka iðkendum og foreldrum fyrir samstarfið á liðnum vetri og hlakka til áframhaldandi starfs í haust.

