10 C
Selfoss

Rjúfum vítahringinn í Tryggvaskála

Vinsælast

Samtök atvinnulífsins hefja hringferð sína með opnum morgunverðarfundi í Tryggvaskála á Selfossi, þriðjudaginn 26. maí, klukkan 8.30. Hringferð SA, sem hefur yfirskriftina Rjúfum vítahringinn, stendur yfir næstu þrjár vikur og verður farið vítt og breitt um landið og efnt til funda við fyrirtæki, sveitarfélög og almenning um stöðu íslensks efnahagslífs og leiðir til aukins stöðugleika.

Á fundinum verður rætt um áhrif verðbólgu og hárra vaxta á heimili og fyrirtæki, samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og mikilvægi þess að skapa skilyrði fyrir lægri vexti, meiri fjárfestingu og bætt lífskjör.

„Það er mikilvægt að við komum saman og eigum hreinskilið samtal um stöðu efnahagsmála og verkefnin fram undan. Verðbólga og óstöðugleiki hafa áhrif á allt samfélagið og þess vegna skiptir máli að hlusta á ólíkar raddir og ræða hvernig við getum sameinast um leiðir til að rjúfa vítahring verðbólgu,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Í pallborði á fundinum í Tryggvaskála eru Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri í Hrunamannahreppi, Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, Gylfi Gíslason, forstjóri Jáverks, Halldóra S. Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri Friðheima.

Húsið verður opnað kl. 8.15 með léttum veitingum.

Nýjar fréttir