Íslandsmót í judo fór fram í aðstöðu Judodeild Ámanns laugardaginn 16. maí.
Tókust þær á um Íslandsmeistara titilinn í flokki yngri en 21 árs þær Ella Rogge og Agla Ósk. Sigraði Agla Ósk nokkuð örugglega í þetta skiptið þó Ella ætti góða spretti. Efnilegir judomenn þar á ferð.
Þá keppti Arnar Helgi Arnarsson í flokki undir 21 árs. Arnar Helgi hefur oft átt betri daga en hlaut annað sæti á eftir Viktori Kristmundssyni JR.
BUDO NORD 2026
Þá keppti Agla Ósk á Budo Nord í Svíþjóð á föstudaginn 15. maí. Agla Ósk sem er að keppa á yngsta ári í flokki undir 21 árs stóð sig mjög vel. Hún náði reyndar ekki að landa sigri og tapaði sínum 2 glímum við svart belta á lámarks stigum og kláraði báðar glímurnar til enda. Frábær árangur og lofar góðu.


