12.6 C
Selfoss

Helgi Björns og Ragga Gísla á Sviðinu á laugardagskvöldið

Vinsælast

Tveir af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, sameina krafta sína í nýrri og persónulegri tónleikaröð undir yfirskriftinni Helgi & Ragga syngja & spjalla. Á tónleikunum munu þau flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við í gegnum árin, segja sögur af langri og litríkri vegferð sinni í tónlist og rifja upp eftirminnileg augnablik – bæði á sviði og utan þess.

Bæði eiga þau sér stóran sess í íslenskri tónlistarsögu. Helgi Björns hefur um áratugaskeið verið einn þekktasti söngvari landsins, meðal annars með hljómsveitunum Grafík og SSSól auk farsæls sólóferils og leiklistarstarfa. Ragga Gísla hefur á sama hátt markað djúp spor sem söngkona, tónskáld og frumkvöðull, meðal annars með Grýlunum og Stuðmönnum, og hefur lengi verið talin ein áhrifamesta rödd íslenskrar dægurtónlistar.

Margir muna einnig eftir því þegar þau leiddu saman hesta sína á árum áður og léku ástfangið par – bæði á sviði og á hvíta tjaldinu. Nú fær sú sérstaka kemistría aftur að njóta sín, þar sem tónlist, húmor og spjall fléttast saman í notalegri kvöldstund.

Með þeim á sviði verða tveir af fremstu hljóðfæraleikurum landsins, þeir Stefán Már Magnússon og Tómas Jónsson, sem munu setja sinn einstaka svip á dagskrána.

Gestir mega búast við kvöldum þar sem góð lög, hlýjar sögur og mikill húmor fara saman – flutt af listamönnum sem eru í sannkölluðu toppformi.

Nýjar fréttir