Iðnfyrirtækið Set ehf. á Selfossi hefur skipt um hendur. Félagið, sem framleiðir meðal annars einangruð rör og plaströr fyrir hita-, vatns- og fráveitukerfi, á rætur að rekja til ársins 1968 þegar Einar Elíasson stofnaði Steypuiðjuna á Selfossi. Set var síðan stofnað árið 1978 og hefur verið í eigu fjölskyldunnar frá upphafi.
Félagið rekur höfuðstöðvar á Selfossi en er einnig með starfsemi í Danmörku og Þýskalandi auk lageraðstöðu í Reykjavík. Velta fyrirtækisins er ríflega fimm milljarðar króna á ári og hjá því starfa um hundrað manns, flestir á Suðurlandi.
Nýir eigendur félagsins eru Orri Hauksson, verkfræðingur og MBA, og Gunnar Fjalar Helgason, hagfræðingur, sem störfuðu saman í stjórnendateymi Símans um árabil.
„Við fögnum því að taka við þessu trausta iðnfyrirtæki á Suðurlandi. Fjölskyldufyrirtæki eru algengasta og árangursríkasta rekstrarform fyrirtækja í heiminum. Eftir því sem tíminn líður þróast eignarhald slíkra fyrirtækja iðulega og að okkar mati er fyrirtaks tími núna að næstu eigendur taki við Seti,“ segir Orri Hauksson, nýr stjórnarformaður Sets, í tilkynningu frá félaginu.
Hann bendir jafnframt á að fram undan sé mikil uppbygging innviða á Íslandi, meðal annars í veitukerfum, orkuöflun og vegagerð, auk þess sem aukin matvælaframleiðsla og fiskeldi hafi skapað aukna eftirspurn eftir hágæðainnviðum.
Örn Einarsson, fráfarandi stjórnarformaður félagsins, segir fjölskylduna stolta af þeirri uppbyggingu sem átt hafi sér stað í gegnum árin og telur eigendaskiptin jákvætt skref fyrir framtíð félagsins.
„Það eru stór og spennandi tímamót hjá okkur og það gleður mig að við höfum lokið sölu á Set ehf. Nýir eigendur koma inn með nýja sýn og víðtæka reynslu sem mun styrkja áframhaldandi vöxt á þeim trausta grunni sem Set býr yfir,“ segir Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, forstjóri Set ehf.


