12.8 C
Selfoss

Skapandi ferli og vellíðan í fyrirrúmi í Listasafni Árnesinga

Vinsælast

Dagana 20.–21. maí stendur Listasafn Árnesinga fyrir tveggja daga námskeiði í samstarfi við Listasafn Íslands undir yfirskriftinni Getur list læknað með því að tengja saman huga og líkama? Og leitt til aukinnar þátttöku, vellíðunar og inngildingar? Þar verður kannað hvernig skapandi ferli, listasmiðjur og safnaheimsóknir geta stuðlað að aukinni vellíðan, sjálfstjáningu og tengingu huga og líkama. Sérstök áhersla verður lögð á inngildingu og áhrif lista á einstaklinga á einhverfurófi og jaðarsettra hópa.

Námskeiðið skiptist í fyrirlestra og umræður í Listasafni Íslands og verklegar listasmiðjur í Listasafni Árnesinga þar sem unnið verður meðal annars með leir, stop-motion og líkamsmiðaða sköpun.

Leiðbeinendur eru frönsku listakonurnar og safnkennararnir Thomasine Giesecke og Pascale Chau-huu sem báðar hafa mikla reynslu af skapandi fræðslu og listmiðlun. Thomasine hefur starfað sem safnkennari við Musée d’Orsay og Musée de l’Orangerie í París og hefur um yfir 20 ára reynslu á því sviði.

Thomasine hefur brennandi áhuga á að kanna nýjar kennsluaðferðir og í rannsóknarvinnu sinni hefur hún orðið vör við mátt efniviðarins fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Thomasine segir „Ég met það mikils að sjá líkamleg samskipti fólks við ólík ­efni. Þessi verkfæri losa um tilfinningar og efla skynjun og næmi, bæði líkamlegt og vitsmunalegt,“.

Námskeiðið hefur vakið mikinn áhuga meðal fagfólks með ólíkan bakgrunn og er fullbókað, en almenningi býðst að taka þátt í tveim opnum listasmiðjum laugardaginn 23. maí í Listasafni Árnesinga. Þar verða meðal annars smiðjurnar Líkamsmyndir í leir – sköpun, hreyfing og dýpt fyrir fullorðna og börn frá 6 ára aldri frá kl. 15-17 með Thomasine og Pascale og Að leika sér með letur með franska hönnuðinum Gregoire Romanet sem fer fram á milli kl. 13-15.

Gregoire er grafískur hönnuður og sviðsmyndahönnuður með aðsetur í París. Hann útskrifaðist frá hinum virta École Supérieure des Arts Décoratifs í Strassborg og vinnur á mörkum myndar, leturgerð og rýmis — og hefur meðal annars hannað stórar veggmyndir á opinberum stöðum og tilraunakenndar leturgerðir.Auk þess hefur Gregoire leiðbeint fjölmörgum smiðjum og námskeiðum í listaskólum í Frakklandi.

Listasafn Árnesinga er stolt af gróskumikilli dagskrá og leggur metnað í öflugt fræðslustarf í samstarfi við fagfólk nær og fjær. Markmið safnsins er ávallt að gera safnið aðgengilegt öllum, óháð búsetu, efnahag eða félagslegum aðstæðum. Framlag safnsins er því mikilvægur þáttur í menningarlífi á svæðinu.

Upplýsingar um komandi viðburði og listasmiðjur í Listasafni Árnesinga má finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og á facebook síðu safnsins.  Verkefnið er styrkt af Safnaráði og skráning nauðsynleg á fraedsla@listasafnarnesinga.is.

Nýjar fréttir