Fjölmenningarhátíð var haldin á Hellu laugardaginn 9. maí síðastliðinn þar sem íbúar svæðisins komu saman og kynntu menningu sína með fjölbreyttum hætti. Gestir gátu notið matar, tónlistar, listar og ýmiss konar skemmtunar frá ólíkum menningarheimum í hlýlegu og fjölskylduvænu umhverfi.
Hátíðin þótti einstaklega vel heppnuð og var mikil aðsókn allan tímann. Talið er að á bilinu 600 til 700 manns hafi sótt viðburðinn yfir daginn.
Hátíðin var opin öllum og sérstök áhersla lögð á þátttöku fjölskyldna og barna. Viðburðurinn var á vegum Fjölmenningarráða Rangárþings ytra og Rangárþings eystra, en markmið hátíðarinnar er að efla samkennd og auka sýnileika fjölbreytileika í samfélaginu.
Alls voru 14 þátttakendur sem tóku þátt í dagskránni. Meðal atriða voru tónlistarflutningur frá fjölmenningarkórnum Vox, taílenskur dans og sýning í thai boxi sem vakti mikla athygli gesta.
Fyrirtækin SS og Holta lögðu til kjöt fyrir þátttakendur og sveitarfélagið veitti verkefninu stuðning.



