First Water, sem sérhæfir sig í sjálfbæru landeldi, vinnslu og útflutningi á laxi frá Þorlákshöfn, hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn í lykilstöður hjá fyrirtækinu.
Sigurður Óli Sigurðarson hefur verið ráðinn sérfræðingur á fjármálasviði First Water. Hann mun starfa á sviði viðskiptaþróunar og koma að áætlanagerð, fjárfestakynningum og öðrum fjármálatengdum verkefnum. Hann er með B.Sc.-gráðu í viðskiptum frá Coastal Carolina University og M.Sc.-gráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og starfaði áður hjá PwC á Íslandi og Landsbankanum.
Vilborg Magnúsdóttir hefur verið ráðin öryggisstjóri First Water. Hún mun bera ábyrgð á öryggismálum, forvörnum og verkefnum tengdum uppbyggingu landeldisstöðvar fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Vilborg er með meistaragráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands með áherslu á atferlismiðað öryggi og atferlismiðaða stjórnun. Hún hefur einnig lokið námi við Lögregluskóla ríkisins. Vilborg hefur víðtæka reynslu. Hún starfaði áður sem öryggis- og gæðastjóri innanlandsflugvalla hjá Isavia, sem rannsóknarlögreglumaður og hjá Sjóvá og Kynnisferðum.
Sigmar Örn Sigþórsson hefur verið ráðinn tæknistjóri í vinnslu hjá First Water. Í því starfi mun hann hafa yfirumsjón með tæknibúnaði og verklegum þáttum framleiðslu- og vinnslukerfa.
Sigmar er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands og með skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig lokið APME-námi í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði um árabil hjá HS Orku sem vélfræðingur orkuvera og kerfisstjóri. Þá starfaði hann einnig hjá Landsvirkjun og Orku Náttúrunnar.
„Það er mikill styrkur fyrir First Water að fá svo öflugan hóp sérfræðinga til liðs við fyrirtækið,“ segir Eggert Þór Kristófersson forstjóri félagsins. „Við erum á miklu uppbyggingarskeiði, eldið gengur framar vonum og sölustarfsemin er komin á gott skrið og verkefnin hjá okkur eru afar fjölbreytt og krefjandi. Það er því mikilvægt að fá til starfa reynslumikið og öflugt fólk með fjölbreyttan bakgrunn.“


