Blómahlaupið var haldið í fyrsta sinn við frábærar móttökur Hvergerðinga um helgina við litríka og fjölmenna þátttöku. Pétur G. Markan bæjarstjóri Hveragerðis ásamt Lárusi Jónssyni oddvita Okkar Hveragerðis ræstu hlaupinu í litadýrð við mikla gleði hlaupara, barna og fullorðna.

Sigurvegarar í 10 km hlaupi voru þeir Halldór Smárason og Ívar Sæland.
Sigurvegarar í skemmtihlaupinu voru þeir Aron Vignisson 9 ár, Sindri Hrafn Alexandersson 6 ára og Þórsteinn Alex Atlason 5 ára. Stefnir Okkar Hveragerði að því að halda Blómahlaupið árlega.
Eftir hlaupið svaraði Pétur bæjarstjóri spurningum barnanna um lýðræðið og tók við áríðandi skilaboðum frá börnunum fyrir komandi kjörtímabil; Öll hús í Hveragerði eiga að vera Tívolíleiksvæði fyrir börn þar sem öll börn geta leikið sér og verið glöð. Niðurstaðan úr samræðum bæjarstjóra og barnanna var sú að fallegasti og skemmtilegasti leikurinn er kærleikurinn og eiga allir, fullorðnir og börn, að leika sér í þeim leik alltaf, alla daga.


