Jón Ingi Sigurmundsson opnar málverkasýngu í Byggðasafni Árnesinga (Alpansal) á Eyrarbakka, fimmtudaginn 14. maí á uppstigningardag kl 14:00. Málverkasýningin er að öllum líkindum ein af síðustu sýningum Jóns Inga.
Myndefnið er frá Eyrarbakka, Grímsnesi, Tungum, Eyjafjöllum og alla leið yfir hafið til Kaupmannahafnar.
Jón Ingi verður á staðnum um helgar og helgidaga frá 14:00 til 17:00 en sýningin verður opin til 31.maí.



