Sunnudaginn 10. maí verður efnt til barnamenningardags í Skálholti með fjölbreyttri dagskrá fyrir fjölskyldur og börn á aldrinum 6–12 ára. Markmiðið er að kynna sögu og menningu staðarins á lifandi og aðgengilegan hátt þar sem börn taka sjálf virkan þátt.
Dagskráin hefst með barna- og fjölskyldumessu í Skálholtsdómkirkju kl. 11:00–11:45. Að henni lokinni, frá kl. 12:00 til 15:00, geta gestir farið frjálst á milli stöðva, sem hver um sig tekur um 45 mínútur.
Í Þorláksbúð verður haldin langspilsvinnusmiðja undir leiðsögn Eyjólfs Eyjólfssonar tónlistarmanns þar sem börn kynnast elsta hljóðfæri Íslendinga og prófa sjálf að leika á það. Rithöfundurinn Kristín Ragna Gunnarsdóttir leiðir börn um Skálholt, þar á meðal í Þorláksbúð og undirgöng, og tengir leiðsögnina við sögur sínar um Úlf og Eddu.
Í fornleifaskóla barnanna kynnir Heiðdís Einarsdóttir fornleifar staðarins, meðal annars safnið í kjallaranum og fornleifasvæðið, og fá þátttakendur að spreyta sig á einföldum uppgreftri og skráningu gripa. Á túninu við kirkjuna standa ungmennaliðar frá KFUM og K fyrir útileikjum fyrir börn.
Veitingastaðurinn Hvönn verður opinn allan daginn með barnamatseðli og nýbökuðum vöfflum.
Aðgangur er ókeypis. Börn skulu vera í fylgd fullorðinna.



